Fótbolti

Kaká: Erum ekki að skemmta áhorfendum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Brasilíumaðurinn Kaká er einn af þeim leikmönnum Real Madrid sem hefur verið gagnrýndur fyrir að standa ekki undir væntingum í vetur.

Hann viðurkennir að leikmenn Real hafi ekki gert nóg til þess að skemmta áhorfendum í vetur.

„Við erum að reyna að finna persónuleika liðsins. Það er ekki auðvelt og við gerum okkur grein fyrir því að við erum ekki að skemmta áhorfendum nægilega mikið," sagði Kaká.

„Það þarf meira til en að kaupa leikmenn. Barcelona hefur verið að spila á sömu mönnum í mörg ár á meðan við erum með átta eða níu nýja leikmenn. Við þurfum meiri tíma."

Madrid á leik í Meistaradeildinni á morgun gegn Marseille þar sem liðið þarf að tapa stórt til þess að komast ekki áfram í keppninni.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×