Fótbolti

Enginn Ronaldo og Real Madrid tapaði fyrir Sevilla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Ramos gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leikslok.
Sergio Ramos gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leikslok. Mynd/AFP

Real Madrid tapaði fyrsta leik sínum á tímabilinu þegar liðið tapaði 1-2 fyrir Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Jesus Navas og Renato skoruðu skallamörk fyrir heimamenn í sitthvorum hálfleiknum.

Jesus Navas skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Sevilla á 33. mínútu og markvörðurinn Iker Casillas bjargaði Real-liðinu tvisvar sinnum áður en Pepe jafnaði í upphafi seinni hálfleiks.

Það var síðan Renato sem skoraði sigurmarkið á 66. mínútu.

Cristiano Ronaldo gat ekki spilað með Real Madrid vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik á móti Marseille í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Barcelona er því búið að ná þriggja stiga forustu í spænsku úrvalsdeildinni en Real er með jafnmörg stig og Sevilla en með betri markatölu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×