Fótbolti

Perez: Tímaspursmál hvenær Villa kemur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa er sagður á leið til Real Madrid.
David Villa er sagður á leið til Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir það aðeins tímaspursmál hvenær félagið gangi frá kaupum á framherjanum David Villa frá Valencia.

Villa sagði sjálfur á blaðamannafundi eftir landsleik Spánar og Írak í gær að hann sjálfur væri búinn að ákveða hvar hann vildi spila á næstu leiktíð. Hann vildi þó ekki gefa upp um hvaða félag væri að ræða.

En spænskir fjölmiðlar hafa haldið fram að þarna átti hann við Real Madrid og hefur Florentino Perez staðfest að viðræður séu komnar langt á leið.

„Hann er frábær leikmaður sem passar vel við okkar verkefni," sagði Perez. „Manuel Llorente (forseti Valencia) þarf að gera það sem hann þarf að gera og það sama á við um mig. Það er aðeins tímaspursmál hvenær gengið verður frá þessu," er haft eftir honum í Marca.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×