Körfubolti

Kidd skrifar undir nýjan samning við Dallas Mavericks

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jason Kidd.
Jason Kidd. Nordic photos/AFP

Stjörnuleikstjórnandinn Jason Kidd verður áfram í herbúðum Dallas Mavericks í NBA-deildinni en hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið.

Hinn 37 ára gamli Kidd hóf ferilinn með Mavericks árið 1994 en fór síðar til Phoenix Suns og New Jersey Nets áður en hann kom aftur til Mavericks í fyrra.

Kidd er þriðji hæstur í stoðsendingum og þreföldum tvennum í sögu NBA-deildarinnar en hann er með 13,8 stig, 6,7 fráköst og 9,2 stoðsendingar að meðaltali í leik á fimmtán ára ferli sínum og hefur níu sinnum verið valinn í stjörnulið NBA-deildarinnar.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×