Sport

Nadal vann Monte Carlo mótið fimmta árið í röð

AFP

Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal sigraði í dag á Monte Carlo mótinu í tennis fimmta árið í röð þegar hann skellti Novak Djokovic í úrslitaleik 6-3, 2-6, 6-1.

Nadal er stigahæsti tennisleikari heims og hefur því unnið fjórtán titla á masters mótaröðinni líkt og Roger Federer. Aðeins Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi hefur unnið fleiri titla á masters - eða 17 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×