Fótbolti

Real Madrid sagt ætla að bjóða í Vidic

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Real Madrid er með allar klær úti þessa dagana til að finna mann til leysa Portúgalann Pepe af en hann spilar ekki meir á þessari leiktíð vegna meiðsla.

Liðið hefur áður verið orðað við Branislav Ivanovic hjá Chelsea en spænska blaðið Marca heldur því fram í dag að Nemanja Vidic, leikmaður Man. Utd, sé efstur á óskalista félagsins.

Marca gengur svo langt að halda því fram að Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, sé þegar búinn að sætta sig við að tapa Vidic og muni kaupa Bruno Alves frá Porto í hans stað.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×