Fótbolti

Messi tryggði Barcelona sigurinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi fagnar síðara marki sínu í dag.
Lionel Messi fagnar síðara marki sínu í dag. Nordic Photos / AFP
Lionel Messi skoraði tvívegis fyrir Barcelona í síðari hálfleik og tryggði liðinu 2-1 sigur á Racing í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Nikola Zigic kom Racing yfir með marki úr víti í fyrri hálfleik en Messi skoraði svo á 65. og 81. mínútu sem dugði til að hirða öll þrjú stigin.

Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu mínútur leiksins en hann kom inn á sem varamaður fyrir Samuel Eto'o.

Börsungar luku þó leiknum með níu menn inn á vellinum. Bæði Rafael Marquez og Gerard Pique fengu að líta sitt annað gula spjald undir lokin en það kom ekki að sök.

Börsungar eindurheimtu þar með tólf stiga forystu á toppi deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Atletico - Valladolid 1-2

Real Betis - Getafe 2-2

Deportivo - Villarreal 3-0

Espanyol - Recreativo 1-1

Osasuna - Mallorca 1-0

Racing - Barcelona 1-2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×