Fótbolti

Kanoute sektaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kanoute fagnar marki sínu í vikunni.
Kanoute fagnar marki sínu í vikunni. Nordic Photos / AFP
Spænsk knattspyrnuyfirvöld sektuðu í dag Freddy Kanoute fyrir skilaboðin sem hann sendi er hann fagnaði marki í leik Sevilla og Deportivo í vikunni.

Kanoute lyfti upp treyjunni sinni og sýndi bol sem á stóð Palestína og vildi hann þar með sýna Palestínumönnum stuðning í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs.

Hann var sektaður um þrjú þúsund evrur fyrir þar sem leikmönnum er ekki heimilt að senda skilaboð sem eru af trúarlegum eða pólitískum toga.

Kanoute barst mörg þakkarskilaboð eftir atvikið en engu að síður var ákveðið að hlýða reglunum og sekta hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×