Fótbolti

Ronaldo: Sný aftur þegar ég verð hundrað prósent leikfær

Ómar Þorgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo fagnar marki með liðsfélögum sínum í Real Madrid.
Cristiano Ronaldo fagnar marki með liðsfélögum sínum í Real Madrid. Nordic photos/AFP

Stórstjarnan Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid segist í samtali við spænska blaðið AS vonast til þess að vera klár á nýjan leik með „Los Blancos" í seinni leiknum gegn AC Milan í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í byrjun nóvember.

Hann ítrekar þó að hann muni ekki snúa aftur fyrr hann sé alveg laus við meiðslin.

„Ég vona að ég verði klár fyrir leikinn gegn AC Milan á San Siro því það er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur og ég vill alls ekki missa af honum. Ég vill hjálpa liðsfélögum mínum í baráttunni en ég verð líka að sýna skynsemi því tímabilið er langt og leikirnir margir. Ég sný því ekki aftur fyrr en ég er orðinn hundrað prósent leikfær," segir Ronaldo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×