Fótbolti

Meistaradeild Evrópu: Liverpool brotlenti í Flórens

Ómar Þorgeirsson skrifar
Óvæntustu úrslit kvöldsins komu þegar Fiorentina vann 2-0 sigur gegn Liverpool.
Óvæntustu úrslit kvöldsins komu þegar Fiorentina vann 2-0 sigur gegn Liverpool. Nordic photos/AFP

Í E-riðli áttu sér stað fremur óvænt úrslit í annarri umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld þegar Liverpool tapaði 2-0 fyrir Fiorentina á Artemio Franchi-leikvanginum í Flórens.

Svartfellingurinn ungi Stevan Jovetic skoraði bæði mörk heimamanna í fyrri hálfleik.

Liverpool var langt frá sínu besta í fyrri hálfleiknum en var betri aðilinn í seinni hálfleik án þess þó að skora en þetta var í fyrsta skiptið í tuttugu og einum leik í Meistaradeildinni sem Englendingarnir ná ekki að skora.

Það tók leikmenn Arsenal smá tíma að brjóta á bak aftur vörn gestanna í Olympiakos í leik liðanna í H-riðli á Emirates-leikvanginum í kvöld en Robin van Persie opnaði markareikninginn fyrir heimamenn með marki í 78. mínútu.

Það var svo Andrei Arshavin sem bætti við öðru marki á 86. mínútu og innsiglaði þar með 2-0 sigur og Lundúnafélagið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í riðlakeppninni.

Í F-riðli vann Barcelona sinn fyrsta sigur þegar Dinamo Kiev kom í heimsókn á Nývang. Lionel Messi kom Börsungum yfir í fyrri hálfleik en varamaðurinn Pedro bætti við öðru marki og niðurstaðan var 2-0 sigur heimamanna.

Jose Mourinho og lærisveinar hans í Inter sóttu ekki gull í greipar Rubin Kazan en félögin skildu jöfn 1-1 í Rússlandi. Heimamenn í Rubin Kazan komust yfir með marki Alejandro Dominquez strax á 11. mínútu en Dejan Stefanovic jafnaði metin með marki á 27. mínútu og þar við sat.

Leikmenn Inter léku manni færri síðasta hálftímann eftir að Mario Baloteli hafði fengið sitt annað gula spjald og verið vikið af velli.

Þá gerði Sevilla góða ferð til Skotlands og vann 1-4 sigur gegn Rangers en Spánverjarnir komust í 0-4 í leiknum.

Úrslit kvöldsins:

E-riðill:

Fiorentina-Liverpool 2-0


1-0 Stevan Jovetic (28.), 2-0 Jovetic (37.).

Debreceni-Lyon 0-4

0-1 Kim Kallström (3.), 0-2 Miralem Pjanic (13.), 0-3 sjálfsm. (24.), 0-4 Bafetimbi Gomis (51.).

F-riðill:

Rubin Kazan-Inter 1-1


1-0 Alejandro Dominguez (11.), 1-1 Dejan Stankovic (27.).

Barcelona-Dinamo Kiev 2-0

1-0 Lionel Messi (26.), 2-0 Pedro (76.).

G-riðill:

FC Unirea-Stuttgart 1-1


0-1 Serdar Tasci (5.), 1-1 Dacian Varga (48.).

Glasgow Rangers-Sevilla 1-4

0-1 Abdoulay Konko (50.), 0-2 Claro Adriano Correia (64.), 0-3 Luis Fabiano (72.), 0-4 Frederic Kanoute (74.), 1-4 Nacho Novo (88.).

H-riðill:

Arsenal-Olympiakos 2-0


1-0 Robin van Persie (78.), 2-0 Andrei Arshavin (86.).

AZ Alkmaar-Standard Liège 1-1

1-0 Mounir El Hamdaoui (48.), Moussa Traore (90.).








Fleiri fréttir

Sjá meira


×