Fótbolti

Casillas: Fínt að sjá Barcelona í baksýnisspeglinum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Iker Casillas.
Iker Casillas. Nordic photos/AFP

Spænski landsliðsmarkvörðurinn Iker Casillas hjá Real Madrid hefur hvatt liðsfélaga sína til þess að hafa hugann ekki einungis við varnarleik fyrir leikinn gegn Barcelona á Nývangi um helgina.

Casillas telur að til þess að Real Madrid geti náð hagstæðum úrslitum í „El Clásico" þurfi liðið að beita grimmum sóknarleik.

„Við getum ekki mætt á Nývang og beðið bara eftir því að þeir sæki gegn okkur. Við þurfum að halda áfram að spila eins og við höfum gert til þessa án þess að hræðast einn né neinn.

Við þurfum að sækja á þá til þess að vinna auk þess auðvitað að hafa sérstakar gætur á hættulegustu leikmönnum þeirra," segir Casillas í viðtali við spænska dagblaðið Marca.

Real Madrid er sem stendur í bílstjórasætinu á toppi deildarinnar með eins stigs forskot á erkifjendur sína og Casillas segir mikilvægt að Madridingar haldi Börsungum fyrir neðan sig í töflunni.

„Barcelona er auðvitað mjög gott lið sem er að spila vel en það er fínt að sjá þá bara í baksýnisspeglinum og þannig viljum við halda því," segir Casillas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×