Fótbolti

Barcelona vann nauman sigur á botnliðinu

AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var allan tímann á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið vann nauman 3-2 útisigur á botnliði Osasuna í spænsku deildinni.

Heimamenn náðu 2-1 forystu í leiknum eftir að Samuel Eto´o hafði komið Barcelona á bragðið í fyrri hálfleik. Það var ekki fyrr en á síðustu tíu mínútum leiksins sem toppliðið náði að snúa leiknum sér í hag.

Xavi (80.) og Leo Messi (85.) tryggðu Barcelona sigurinn og nú er liðið komið með tólf stiga forskot á toppi deildarinnar.

Barcelona hefur 47 stig, en Sevilla og Real Madrid hafa 35 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×