Sport

Lögreglan hélt að gemsinn væri byssa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tony Fein.
Tony Fein.

Tony Fein, leikmaður Baltimore Ravens, var handtekinn um helgina fyrir að ráðast á lögreglumann. Málið er á nokkrum misskilningi byggt.

Fein var úti að snæða með félögum sínum þegar öryggisvörður taldi sig hafa séð hann rétta félaga sínum byssu. Þegar málið var kannað var hann í raun að rétta honum gsm-síma.

Lögreglan mætti samt á staðinn. Fein tók afskiptasemi hennar illa og hrinti einum lögreglumanninum sem féll í gólfið enda Fein sterkur maður.

Fein, sem er 27 ára gamall, var ráðinn af Ravens í sumar en hann er fyrrum hermaður sem sinnti herþjónustu í Írak í þrjú ár. Hann fór í háskólaboltann eftir herþjónustuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×