Fótbolti

Inter vill fá Messi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Joan Laporta, forseti Barcelona, greindi frá því að forráðamenn Inter færu ekki í grafgötur með að félagið vill kaupa Lionel Messi frá Barca.

„Messi er ekki til sölu og forráðamenn Inter geta bara gleymt þessu strax," sagði Laporta.

Massimo Moratti, forseti Inter, heyrði hljóðið í Börsungum vegna Messi síðasta sumar þegar félögin voru að ganga frá skiptum á Eto´o og Zlatan.

„Þá sagði ég Moratti strax að Messi væri ekki til sölu. Það kæmi engan veginn til greina að selja hann," bætti Laporta við.

Liðin mætast í Meistaradeildinni þann 24. nóvember í afar mikilvægum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×