Sport

Hún er litla stelpan mín

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Caster Semenya.
Caster Semenya. Nordic Photos/AFP

Foreldrar Suður-Afrísku hlaupakonunnar Caster Semenya hafa stigið fram í sviðsljósið og lýst því yfir að dóttir þeirra sé kona en ekki karlmaður.

„Hún er litla stelpan mín. Ég ól hana upp og hef alla tíð vitað að hún væri stúlka en ekki strákur," sagði faðir Semenya, Jacob.

Amma hennar hefur einnig stigið fram og greint frá því að Semenya sé stúlka.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja þegar fólk talar um hana eins og karlmann þegar hún er það ekki. Það var Guð sem lét hana líta svona út," sagði amman.

Semenya fékk afhent verðlaun fyrir sigur í 800 metra hlaupi kvenna á HM í Berlín í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×