Fótbolti

Ekki öruggt að Zlatan geti spilað með Barca í El Clásico

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki ásamt félaga sínum Thierry Henry.
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki ásamt félaga sínum Thierry Henry. Mynd/AFP
Zlatan Ibrahimovic meiddist á æfingu hjá Barcelona í vikunni og missir örugglega af leik liðsins um helgina á móti Athletic Bilbao. Það er einnig óvíst hvort hann geti verið með á móti Inter í Meistaradeildinni á miðvikudaginn eða á móti Real Madrid í El Clásico á sunnudaginn eftir viku.

Zlatan Ibrahimovic tognaði aftan í læri á æfingu á miðvikudaginn en það geta verið erfið og mjög lúmsk meiðsli.

Báðir þessir leikir skipta Barcelona liðið gríðarlega miklu máli og því reyna læknar og sjúkraþjálfarar liðsins örugglega allt til þess að fá hann góðan.

Zlatan hefur byrjað frábærlega með Barcelona á Spáni og er nú þegar kominn með átta deildarmörk og eitt mark í Meistaradeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×