Fótbolti

Elmar skoraði í sigri Gautaborgar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Theodór Elmar í leik með íslenska landsliðinu.
Theodór Elmar í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Theodór Elmar Bjarnason skoraði eitt marka IFK Gautaborgar í 3-1 sigri liðsins á Helsingborg í undanúrslitum sænsku bikarkeppninnar í kvöld.

Theodór Elmar, Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson voru allir í byrjunarliði Gautaborgar í kvöld.

Mark Theodórs Elmars kom á 84. mínútu en honum var skipt af velli skömmu fyrir leikslok. Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið en þangað kom hann fyrr í sumar frá norska félaginu Lyn.

Gautaborg mætir AIK Solna í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×