Fótbolti

Kaka orðaður við Real Madrid

Nordic Photos/Getty Images

"Kaka segir já við Florentino" sagði á forsíðu spænska blaðsins Marca í morgun. Þar var vísað í frétt í blaðinu þar sem sagt er að Brasilíumaðurinn Kaka hafi samþykkt að ganga í raðir Real Madrid frá AC Milan í sumar.

Forsetaframbjóðandinn Florentino Perez mun hafa átt leynilegan fund með varaforseta Milan og Kaka fyrir skömmu þar sem Perez lofaði að greiða Milan 60 milljónir evra á fjórum árum fyrir brasilíska miðjumanninn ef hann nær kjöri.

Perez, sem í fyrri forsetatíð sinni sankaði að sér stórstjörnum á borð við Ronaldo, Beckham og Zidane, mun einnig vera farinn að vinna í því að næla í Cristiano Ronaldo frá Manchester United í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×