Fótbolti

Pepe: Þetta var ekki víti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pepe er ekki par sáttur.
Pepe er ekki par sáttur.

Portúgalinn Pepe hjá Real Madrid er afar ósáttur við vítaspyrnuna sem var dæmd á hann gegn AC Milan á San Siro í gær.

Boltinn virtist fara í hönd Pepe þegar vítið var dæmt en hann segir það ekki vera rétt.

„Vítaspyrnudómurinn var afar sérkennilegur. Það er samt erfitt að sjá að boltinn fór í raun og veru í bakið á mér," sagði Pepe en honum fannst sitt lið eiga öll stigin skilið í gær.

„Við komum til að sigra. Mér fannst við spila frábæran leik og eiga skilið að vinna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×