Fótbolti

Pique: Hef þaggað niður í efasemdarröddum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gerard Pique.
Gerard Pique.

Varnarmaðurinn Gerard Pique hjá Barcelona segist þess fullviss að hann hafi troðið upp í alla þá sem efuðust þegar Barcelona ákvað að fá hann aftur til félagsins frá Man. Utd.

Pique kom aftur til Spánar árið 2008 eftir að hafa verið hjá United í fjögur ár. Ekki voru allir sannfærðir um þá ákvörðun Börsunga.

Hann lék aftur á móti frábærlega á síðustu leiktíð er Barca vann þrennuna eftirminnilega. Frammistaða hans hefur síðan skilað honum sæti í spænska landsliðinu.

„Það var fólk sem skildi ekkert í þessu þegar ég kom aftur hingað. Ég er ánægður eftir síðasta tímabil og gagnrýnendurnir hafa þagnað," sagði Pique ákveðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×