Fótbolti

Meistarar Barcelona töpuðu á Mallorca

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður Smári í baráttunni á Mallorca í dag.
Eiður Smári í baráttunni á Mallorca í dag. Nordic Photos/Getty Images

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í dag sem sótti Real Mallorca heima á sólareyjuna. Barcelona varð meistari í gær er Real Madrid tapaði en liðið náði ekki að fylgja því eftir í dag því Mallorca vann leikinn, 2-1.

Samuel Eto´o kom Barcelona yfir á tíundu mínútu og Börsungar sóttu gríðarlega grimmt í kjölfarið og virtust ætla að sökkva heimamönnum.

Þeir tóku aftur á móti við sér í síðari hálfleik og skoruðu tvö mörk. Fyrst Juan Arango á 73. mínútu og svo Cleber Santana á 78. mínútu.

Eiður Smári var tekinn af velli á 74. mínútu fyrir Thiago.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×