Fótbolti

Guardiola: Erum að mæta besta liði heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guardiola stýrir æfingu Barcelona á Ólympíuleikvanginum í kvöld.
Guardiola stýrir æfingu Barcelona á Ólympíuleikvanginum í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, reyndi að tala niður væntingarnar til síns liðs á blaðamannafundi í Róm í dag.

„Stuðningsmennirnir gera sér fulla grein fyrir því að þetta verður ekki auðveldur leikur. Við vitum vel að við erum að mæta besta liði heims og við viljum vinna besta lið heims. Til þess að gera það verðum við að vera Barca," sagði Guardiola og vísaði þar til leikstílsins sem hann vill að liðið sýni annað kvöld.

„Ég vil að mínir leikmenn spili fallega knattspyrnu. Ég vil að þeir sýni hugrekki og áræðni og um leið heiminum af hverju við erum svona sigursælt félag.

„Það er það eina sem ég hef áhyggjur af. Ég vil ekki sjá eftir neinu þegar þessum leik er lokið. Ég vil að við gerum allt sem við vitum að við getum," sagði Guardiola sem er þegar búinn að vinna spænsku deildina og spænska bikarinn á sínu fyrsta ári með liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×