Fótbolti

Mijatovic er hættur hjá Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Predrag Mijatovic sést hér á sínum tíma sem leikmaður Real Madrid.
Predrag Mijatovic sést hér á sínum tíma sem leikmaður Real Madrid. Mynd/AFP

Predrag Mijatovic, Íþróttastjóri Real Madrid, hefur náð samkomulagi við félagið um að hætta störfum einu ári fyrr en samningur hans hljóðar upp á. Félagið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í dag.

Það hefur verið búist við því að Mijatovic myndi hætta allar götur síðan að upp komst um kosningarsvindl forsetans Ramon Calderon í janúar. Hann hefur líka verið gagnrýndur fyrir að takast ekki að ná í toppleikmenn til Real Madrid.

Mijatovic segir í tilkynningunni á heimasíðunni að þetta sé rétti tíminn til að hætta þar sem forsetakosningar fari fram 14. júní næstkomandi og hann sé sáttur við að hafa skilað tveimur meistaratitlum á sínum tíma í starfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×