Fótbolti

Jose Mourinho: Ég öfunda ekki leikmannahóp Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho óskar Pepp Guardiola til hamingju með sigurinn í kvöld.
Jose Mourinho óskar Pepp Guardiola til hamingju með sigurinn í kvöld. Mynd/AFP
Barcelona vann öruggan sigur á Inter í Meistaradeildinni í kvöld og Jose Mourinho viðurkenndi það á blaðamannafundi eftir leikinn.

„2-0 voru sanngjörn úrslit og Barcelona-liðið var að spila mjög vel í þessum leik," sagði Jose Mourinho, þjálfari Inter eftir að lið hans tapaði á Camp Nou í kvöld.

„Ég öfunda ekki leikmannahóp Barcelona enda er það ekki í mínu eðli að öfunda einn eða neinna. Það eru hinsvegar margir einstakir leikmenn í liði Barcelona. Xavi eða Iniesta. Það er bara eitt eintak til af slíkum leikmönnum í heiminum," sagði Mourinho.

Mourinho var ánægður með seinni hálfleikinn þar sem Inter-liðið hélt hreinu og sýndi allt annan og betri leik en í þeim fyrri.

„Lið án stolts hefði tapað með þremur eða fjórum mörkum. Við löguðum hinsvegar okkar leik, það var meira jafnvægi í liðinu og við sköpuðum einnig nokkur tækifæri," sagði Jose Mourinho sem sagði þennan leik skipa lítinn sess í sögunni enda réðust úrslitin ekki fyrr en í lokaumferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×