Fótbolti

Scolari orðaður við Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea.
Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Spænskir fjölmiðlar halda því fram í dag að forráðamenn Real Madrid eru nú að skoða þann möguleika að fá Luiz Felipe Scolari til félagsins ef Manuel Pellegrini, stjóri Real, verður látinn fara.

Scolari var áður þjálfari Chelsea en er nú stjóri Bunyodkor í Úsbekistan. Hann er sagður á ofurlaunum hjá félaginu og að hann sé hæstlaunaðasti þjálfari heims um þessar mundir.

Scolari gerði Brasilíu að heimsmeisturum árið 2002 og tók svo við landsliði Portúgal. Hann hefur því bæði unnið með þeim Kaka og Cristiano Ronaldo áður sem hugnast forráðamönnum Real vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×