Fótbolti

Laudrup og Aragones efstir á óskalista Atletico Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Michael Laudrup.
Michael Laudrup.

Það búast flestir fastlega við því að Abel Resino verði fljótlega rekinn sem þjálfari Atletico Madrid enda hefur liðið nákvæmlega ekkert getað í upphafi tímabilsins.

Daninn Michael Laudrup er talinn líklegur arftaki Resino en gamli jálkurinn Luis Aragones hefur einnig verið orðaður við starfið.

Resino hefur aðeins stýrt Atletico til eins sigurs í fyrstu tíu leikjum vetrarins og liðinu var síðan rúllað upp af Chelsea í Meistaradeildinni í gær.

Margir spá því jafnvel að Resino fái að fjúka fyrir helgi og í síðasta lagi strax eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×