Fótbolti

Higuain tryggði Real Madrid stigin þrjú gegn Racing Santander

Ómar Þorgeirsson skrifar
Gonzalo Higuain.
Gonzalo Higuain. Nordic photos/AFP

Real Madrid vann nauman 1-0 sigur gegn Racing Santander í spænsku úrvalsdeildinni á Santiago Bernabeu-leikvanginum í kvöld.

Framherjinn Gonzalo Higuain skoraði eina mark leiksins fyrir Real Madrid á 22. mínútu en heimamenn í Real Madrid voru heppnir þar sem löglegt mark var dæmt af gestunum þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.

Real Madrid skaust þar með tímabundið á topp deildarinnar en Barcelona getur endurheimt toppsætið með sigri gegn Athletic Bilbao síðar í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×