Fótbolti

Iniesta bjartsýnn á að ná úrslitaleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Andres Iniesta.
Andres Iniesta. Nordic Photos/Getty Images

Hinn magnaði miðjumaður Barcelona, Andres Iniesta, býst við því að vera klár í slaginn er Barcelona mætir Man. Utd í úrslitum Meistaradeildarinnar þann 27. maí næstkomandi.

Iniesta meiddist á læri í 3-3 jafnteflinu gegn Villarreal.

„Það er smá rifa í lærvöðvanum en sem betur fer er þetta ekki eins slæmt og við óttuðumst í fyrstu. Ég verð mættur til Róm. Metnaðurinn sem ég hef fyrir því að spila mun hjálpa bata mínum," sagði miðjumaðurinn ákveðinn.

Börsungar hafa ekki bara áhyggjur af meiðslum Iniesta fyrir leikinn en Thierry Henry er einnig meiddur og enn óvissa með hans þáttöku.

Svo verða þeir Dani Alves og Eric Abidal í leikbanni í leiknum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×