Tvíhöfði í Höllinni í kvöld - Meistarakeppni HSÍ 2009 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2009 14:00 Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli Valsmanna í vor. Mynd/Vilhelm
Meistarakeppni HSÍ fer fram í Laugardalshöllinni í kvöld og þessu sinni fara bæði karla og kvennaleikurinn fram á sama stað og á sama kvöldi. Leikur Stjörnunnar og FH í kvennaflokki hefst klukkan 18.30 og leikur Hauka og Vals í karlaflokki hefst síðan strax á eftir eða klukkan 20.30. Stjarnan er Íslands- og bikarmeistari í kvennaflokki en FH fékk sæti í leiknum þar sem liðið komst í bikarúrslitaleikinn á síðasta tímabili. Stjarnan vann bikarúrslitaleik liðanna 27-22 í Höllinni en bæði lið hafa breyst nokkuð síðan í þeim leik. Haukar eru Íslandsmeistarar í karlaflokki og Valsmenn eru bikarmeistarar. Liðin eru bæði líkleg til afreka í vetur og það stefnir í jafnan og spennandi leik ef marka má leik þeirra í Hafnarfjarðarmótinu um helgina þar sem þau gerðu 23-23 jafntefli. Valsmenn unnu að lokum Hafnarfjarðarmótið með minnsta mögulega mun,. Bæði lið fengu 5 stig og voru með sama markahlutfall en Valsmenn höfðu skorað einu marki meira og voru því krýndir meistarar. Haukar ætla væntanlega að hefna fyrir það í kvöld.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Sjá meira