Fótbolti

Rijkaard vill fá Guti til Tyrklands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guti í leik með Real.
Guti í leik með Real. Nordic Photos/AFP

Hollendingurinn Frank Rijkaard, þjálfari Galatasaray, hefur beðið stjórn félagsins um að kaupa Guti frá Real Madrid.

Rijkaard er ætlað að byggja upp nýtt stórveldi hjá tyrkneska félaginu. Hann hefur þegar fengið Elano frá Man. City og Leo Franco frá Atletico Madrid. Fyrir hjá félaginu voru menn eins og Milan Baros og Harry Kewell.

Rijkaard hefur verið að leita að leiðtoga á miðjuna, mann til að dreifa spilinu og þar sér hann Guti fyrir sér.

Hinn 32 ára Guti sér væntanlega fram á talsverða bekkjarsetu hjá Real í vetur og því er aldrei að vita nema hann skelli sér á tilboð Galatasaray.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×