Fótbolti

Framkvæmdastjóri Real veit ekki af samningi við Ronaldo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Nordic Photos/Getty Images

Jorge Valdano, sem var að taka við framkvæmdastjórastöðu hjá Real Madrid, segist ekkert vita af meintum samningi nýkjörins forseta félagsins, Florentino Perez, við Cristiano Ronaldo.

Það hafa borist fréttir af því að Perez sé með samning við Ronaldo um að koma til félagsins ef hann næði völdum hjá félaginu en Perez ætlar að byggja upp nýtt ofurlið hjá Real.

„Ég veit ekkert um þennan meinta samning. Ég veit heldur ekki hvort Florentino hefur komið að einhverjum samningi. Ef svo er þá hef ég ekki séð hann," sagði Valdano.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×