Körfubolti

Gasol nálægt því að framlengja við Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gasol og Kobe verða áfram félagar.
Gasol og Kobe verða áfram félagar.

Það er fátt sem bendir til þess að Lakers-maskínan sé að fara að leysast upp því Pau Gasol og Kobe Bryant eru líklega báðir að gera nýjan samning við NBA-meistarana.

Talið er að Lakers sé búið að ná samkomulagi við Gasol um nýjan þriggja ára samning sem ætti að skila Gasol allt að 64 milljónum dollara.

Ekki er langt síðan greint var frá því að Kobe Bryant væri væntanlega að gera sinn síðasta atvinnumannasamning og það við Lakers.

Lakers ætlar sér augljóslega ekki að gera sömu mistök og önnur félög að gera öðrum liðum kleift að næla í stjörnur sínar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×