Fótbolti

Henry: Einstök pressa hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Thierry Henry er á því að Barcelona sé á réttu róli þó svo ekki séu allir sáttir með spilamennsku liðsins þessa dagana.

Barcelona er þrátt fyrir það á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar og enn í góðri stöðu að komast áfram í Meistaradeildinni þó svo liðið hafi misstigið sig gegn Rubin Kazan.

„Svona er Barca. Við vinnum fimm titla en fólk vill fá sex. Við gerum jafntefli og fólk krefst þess að við fáum þrjú stig og spilum frábærlega," sagði Henry.

„Svona er þessi staður og ef menn vilja spila hérna þá verða þeir að geta tekið slíkri pressu. Við erum í góðri stöðu í deildinni og Meistaradeildinni og að spila nokkuð vel."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×