Íslenski boltinn

Valsstúlkur unnu sigur í meistarakeppninni

Kvennalið Vals vann í kvöld sigur í meistarakeppni KSÍ þegar liðið lagði KR 2-1 í árlegum leik ríkjandi Íslands- og bikarmeistaranna í knattspyrnu.

KR komst yfir strax í byrjun leiks með marki frá Rut Bjarnadóttur sem gekk í raðir vesturbæjarliðsins fyrir tímabilið.

Valsliðið var sterkari aðilinn í leiknum en liðið náði ekki að jafna leikinn fyrr en eftir rúmlega klukkutímaleik. Þar var að verki fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir.

Það var svo Guðný Petrína Þórðardóttir sem skoraði sigurmark Valsliðsins skömmu fyrir leikslok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×