Fótbolti

Eigandi Man. City ætlar ekki að kaupa Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessi mynd var tekin við eigendaskiptin hjá City.
Þessi mynd var tekin við eigendaskiptin hjá City.

Eigandi Man. City, Sheikh Mansour, og Real Madrid hafa bæði vísað á bug fréttum um að Mansour sé við það að festa kaup á Real Madrid.

Spænskir fjölmiðlar voru með fréttir um þetta efni og sögðu að þegar hefði verið skipulagður fundur með forseta Real, Florentino Perez.

Báðir aðilar segja þessar fréttir vera úr lausu lofti gripnar.

Real segir að þó svo mikill vinskapur sé með Perez og Mansour þá séu kaup ekki í myndinni.





 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×