Fótbolti

Forlan og Aguero að fá nýja og betri samninga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Frábært framherjapar hér á ferðinni.
Frábært framherjapar hér á ferðinni. Nordic Photos/AFP

Atletico Madrid mun á næstunni bjóða framherjunum Diego Forlan og Sergio Aguero nýja og betri samninga hjá félaginu.

Áður en af því verður þarf félagið samt endanlega að tryggja sig inn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Atletico mætir Panathinaikos í keppninni á morgun og leiðir, 3-2, eftir fyrri leikinn.

Fjölmörg félög í Evrópu hafa gengið með grasið í skónum á eftir þeim félögum sem hafa farið á kostum með spænska félaginu.

Atletico vonast til þess að klára samningamálin við Forlan fyrir næstu mánaðarmót en samningaviðræður við Aguero munu taka lengri tíma og Atletico stefnir á að klára það dæmi fyrir áramót.

Aguero er annars samningsbundinn félaginu til ársins 2012 og Forlan til 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×