Fótbolti

Pique mun framlengja við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er aðeins tímaspursmál hvenær Gerard Pique skrifar undir nýjan samning við Barcelona. Nýi samningurinn verður til ársins 2014.

Pique kom frá Man. Utd sumarið 2008 og hefur heldur betur slegið í gegn í miðvarðarstöðunni hjá félaginu.

„Pique er næstur í röðinni hjá okkur og mun fá nýjan samning því hann á það skilið. Hann er í dag orðinn einn besti miðvörður heims," sagði Joan Laporta, forseti Barcelona.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×