Fótbolti

Ibrahimovich: Inter hafði ekki unnið í sautján áður en ég kom þangað

Ómar Þorgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovich.
Zlatan Ibrahimovich. Nordic photos/AFP

Ítalskir fjölmiðlar er þegar byrjaðir að fjalla um tilvonandi endurkomu Zlatan Ibrahimovich á San Siro-leikvanginn í næstu viku þegar Inter og Barcelona eigast við í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Ibrahimovich hefur verið óspar á yfirlýsingarnar síðan hann gekk til liðs við Barcelona frá Inter í sumar og því er búist við því að hann fái heldur óblíðar móttökur frá fyrrum liðsfélögum sínum sem og aðdáendum Inter.

Ibrahimovich var þó hvergi banginn á blaðamannafundi í tengslum við landsleik Svía og Möltu þegar hann var inntur eftir viðbrögðum varðandi endurkomu sína til Mílanóborgar.

„Ég veit ekkert hvernig móttökurnar verða og er satt best að segja ekkert að velta þessu fyrir mér. Ég held samt að hinir sönnu aðdáendur Inter viti hvað ég gerði fyrir félagið því það var ekki búið að vinna titilinn í sautján ár áður en ég kom. Við unnum svo titilinn öll þau þrjú ár sem ég var hjá félaginu," sagði Ibrahimovich.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×