Fótbolti

Cannavaro í viðræðum við Juventus

Nordic Photos/Getty Images

Umboðsmaður varnarmannsins Fabio Cannavaro hjá Real Madrid hefur staðfest að hann eigi í viðræðum við gamla félagið hans Juventus á Ítalíu með fyrirhuguð félagaskipti í huga í sumar.

Cannavaro spilaði með Juventus á árunum 2004-06 en var keyptur til Real eftir að hafa farið fyrir heimsmeisturum Ítala á HM.

Hann var kjörinn leikmaður ársins 2006 af FIFA og var fyrsti varnarmaðurinn til að hljóta þann heiður.

Umboðsmaður kappans segir hann hafa hug á því að snúa aftur til Ítalíu, en hann hefur líka verið orðaður við Napoli þar sem hann hóf feril sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×