Fótbolti

Zlatan tryggði Barca sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki sínu í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP

Zlatan Ibrahimovic var hetja Barcelona sem vann 1-0 sigur á Real Madrid í toppslag spænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Zlatan skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu eftir fyrirgjöf Dani Alves en hann hafði komið inn á sem varamaður aðeins fimm mínútum áður.

Sergio Busquets fékk svo að líta sína aðra áminningu í leiknum og þar með rautt fyrir að handleika knöttinn aðeins sjö mínútum síðar.

En Real náði sér ekki að færa sér liðsmuninn í nyt og undir lok leiksins fékk meira að segja Lassana Diarra, leikmaður Real, einnig að líta sína aðra áminningu undir lok leiksins.

Þó svo að aðeins eitt mark hafi litið dagsins ljós í leiknum var hann opinn og skemmtilegur. Real fékk þó nokkur góð færi í leiknum en allt kom fyrir ekki.

Þar með er Barcelona aftur komið á topp spænsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig, tveimur á undan Real Madrid.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×