Fótbolti

Messi og Ibrahimovic æfðu í dag og verða með í El Clasico

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic sjást hér á æfingunni í dag.
Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic sjást hér á æfingunni í dag. Mynd/AFP
Barcelona mætir með fullt lið á móti Real Madrid í El Clasico á sunnudaginn. Lionel Messi og Zlatan Ibrahimovic æfðu báðir með Katalóníuliðinu í dag og geta spilað leikinn mikilvæga á sunnudagskvöldið.

Messi og Ibrahimovic hafa báðir verið að glíma við vöðvatognanir og voru hvorugur með í 2-0 sigri liðsins á Inter í Meistaradeildinni í vikunni. Ibrahimovic hefur verið frá í tvær vikur.

Það voru ekkert nema góðar fréttir fyrir Pepp Guardiola þjálfara Barcelona í dag því auk þess að stórstjörnur hans komust í gegn morgunæfinguna er ökklinn á Dani Alves orðinn góður og Yaya Toure búinn að ná sér af af svínaflensunni. Guardiola getur því notað alla sína bestu leikmenn í risaleiknum á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×