Sport

Federer vann og setti met

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roger Federer.
Roger Federer.

Svisslendingurinn Roger Federer varð í dag Wimbledon-meistari í tennis en þetta var hans fimmtándi sigur á stórmóti sem er met. Federer lagði Andy Roddick eftir magnaða viðureign sem fór í fimm lotur.

Federer er 27 ára og mun hann nú skjótast upp fyrir Rafael Nada og taka toppsæti heimslistans. Hann hefur unnið Wimbledon-mótið sex sinnum. Þetta var sjöunda árið í röð sem Federer kemst í úrslit á Wimbledon. Hann vann í fyrstu fimm skiptin en tapaði fyrir Rafael Nadal í úrslitunum í fyrra. Nadal er frá núna vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×