Fótbolti

Wenger: Liðið er að þroskast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var afar stoltur af liði sínu í kvöld enda spilaði það frábæran fótbolta. Hann telur að þetta lið eigi vel að geta unnið bikara í vetur.

„Ég hef sagt það lengi og við viljum sýna að við getum það. Ef við höldum þessu viðhorfi og anda þá getum við gert eitthvað sérstakt," sagði Wenger.

„Þessir strákar hafa frábært viðhorf, mikil gæði og mikinn anda. Við erum sífellt að styrkjast og mér finnst liðið vera að þroskast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×