Fótbolti

Eiður sagður fara til Mónakó í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Barcelona.
Eiður Smári í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen mun í dag ganga til liðs við franska úrvalsdeildarfélagið AS Monaco, eftir því sem fram kemur í spænska dagblaðinu Marca.

Franskir fjölmiðlar greindu frá því á föstudaginn að þetta stæði til.

Eiður hefur verið í herbúðum Barcelona undanfarin þrjú ár en hefur fá tækifæri fengið með liðinu á þessu ári. Hann hefur þó unnið allt sem í boði hefur verið með Barcelona á árinu - spænsku deilda- og bikarkeppnina, Meistaradeild Evrópu auk þess sem liðið varð meistari meistaranna bæði á Spáni og í Evrópu nú að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×