Körfubolti

NBA: Jazz stöðvaði sigurgöngu Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ellefu leikja sigugöngu LA Lakers lauk í nótt er Utah Jazz vann góðan heimasigur á meisturunum. Sigurinn var sæt hefnd fyrir neyðarlegt tap síðasta miðvikudag er Utah spilaði einn versta leikhluta í sögu félagsins.

Liðið skoraði þá aðeins sex stig sem er versta frammistaða í fjórða leikhluta hjá félaginu og það næstlélegasta hjá félaginu frá upphafi.

Góður sóknarleikur og flott framlag frá Wesley Matthews og Ronnie Brewer lagði grunninn að sigri Jazz. Ekki skemmdi fyrir að Kobe Bryant var ekki upp á sitt besta með brákaðan putta.

Úrslit næturinnar:

Washington-Indiana  113-114

Detroit-Golden State  104-95

Chicago-Boston 80-106

Dallas-Charlotte  98-97

Milwaukee-Portland  108-101

Denver-Phoenix  105-99

Utah-LA Lakers  102-94

Sacramento-Minnesota  120-100

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×