Fótbolti

Pepe dæmdur í tíu leikja bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pepe brosir ekki að tíu leikja banninu.
Pepe brosir ekki að tíu leikja banninu. Nordic Photos/getty Images

Pepe, varnarmaður Real Madrid, var í dag dæmdur í tíu leikja bann fyrir brjálæðislega hegðun sína í leiknum gegn Getafe.

Pepe gerði sér lítið fyrir og sparkaði í Javier Casquero, kýldi Juan Albin og hellti sér svo yfir dómara leiksins þegar hann var réttilega rekinn af velli.

Hann hefur þar með lokið keppni á þessari leiktíð og verður í leikbanni í fyrstu fjórum leikjum næsta tímabils.

Pepe missti algjörlega stjórn á sér þegar sóknarmaður Getafe féll fyrir framan hann. Sparkaði hann þá gróflega í bakið á leikmanninum og hafa menn ekki séð slíka hegðun lengi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×