Fótbolti

Perez vill Kaka og Ronaldo til Real Madrid

Eiríkur stefán Ásgeirsson skrifar
Kaka, Messi og Ronaldo - bestu leikmenn heims samkvæmt forseta Real Madrid.
Kaka, Messi og Ronaldo - bestu leikmenn heims samkvæmt forseta Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Florentino Perez, nýskipaður foreseti Real Madrid, hefur lýst því yfir að hann ætli að gera allt sem í sínu valdi stendur til að fá Brasilíumanninn Kaka og Cristiano Ronaldo til félagsins.

Real Madrid á nú í viðræðum við AC Milan um kaup á Kaka en Ronaldo hefur lengi verið orðaður við Madrídinga. Fjölmiðlar hafa haldið því fram að félagið hafi gert leynilegan samning við Ronaldo um að hann gangi til liðs við félagið en Perez hefur sagt að hann viti ekkert um slíkan samning.

„Kaka, Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru bestu leikmenn heimsins," sagði Perez í samtali við spænska fjölmiðla. „Ég ætla að vinna að því að fá Kaka og Cristiano Ronaldo til Real Madrid."

Chelsea var sagt í gær hafa boðið 73,5 milljónir punda í Kaka en félagið neitaði þeim fregnum. Það gladdi Perez. „Það eru góðar fréttir ef við fáum ekki samkeppni frá Chelsea. Við eigum í góðu sambandi við Milan. Adriano Galliani er vinur minn sem mun auðvelda samningaviðræðurnar. Þá hefur leikmaðurinn sjálfur lýst yfir áhuga á að koma hingað."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×