Fótbolti

Eiði boðið til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári með félögum sínum í Barcelona eftir sigurinn í spænsku bikarkeppninni í vor.
Eiður Smári með félögum sínum í Barcelona eftir sigurinn í spænsku bikarkeppninni í vor. Nordic Photos / AFP

Eiði Smára Guðjohnsen er boðið að vera viðstaddur sérstakan fagnað fyrir leik Barcelona og Villarreal um helgina en þá verður haldið upp á það að Börsungar unnu sex titla á árinu 2009.

Eiður Smári var í liðinu þegar það vann fyrstu fimm titlana en fór svo til AC Monaco í Frakklandi í haust. Þeim Samuel Eto'o, Sylvinho og Jorquera verður einnig boðið en þeir fóru allir frá Barcelona eftir síðasta tímabil, rétt eins og Eiður Smári.

Athöfnin markar endi á hreint ótrúlegu ári Barcelona en árangurinn verður seint toppaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×