Fótbolti

Eiður ekki í leikmannahópi Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona.
Eiður Smári hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Sporting Gijon í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar annað kvöld.

Þetta gefur sterklega til kynna að Eiður Smári sé á leið frá félaginu á morgun. Líklegt þykir að hann sé á leið til Mónakó sem leikur í frönsku úrvalsdeildinni.

Pep Guardiola, stjóri Barcelona, hefur valið nítján leikmenn fyrir leikinn á morgun.

Markverðir: Victor Valdes og Pinto.

Varnarmenn: Dani Alves, Puyol, Pique, Fontas, Muniesa, Abidal, Maxwell.

Miðvallarleikmenn: Yaya Toure, Busquets, Keita, Jonathan, Jeffren, Xavi.

Sóknarmenn: Pedro, Ibrahimovic, Bojan, Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×