Fótbolti

Van Nistelrooy einstaklega seinheppinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruud van Nistelrooy var búinn að skora eftir aðeins tíu mínútu.
Ruud van Nistelrooy var búinn að skora eftir aðeins tíu mínútu. Mynd/AFP

Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy var fljótur að skora sitt fyrsta mark eftir að hann snéri aftur til leiks hjá Real Madrid en hann var jafnfljótur að meiðast aftur. Van Nistelrooy tognaði nefnilega á læri um leið og hann skoraði fimmta mark Real í 5-0 sigri á Xerez í gær og verður af þeim sökum frá í sex vikur.

Van Nistelrooy var þarna að koma inn í lið Real Madrid efrir að hafa misst af níu mánuðum vegna hnémeiðsla. Hann var orðaður við önnur félög en ákvað að vera áfram á Bernabeu og berjast fyrir sæti sínu.

Van Nistelrooy kom inn á fyrir Cristiano Ronaldo á 79. mínútu og skoraði markið sitt á 89. mínútu. Áður hafði hann lagt upp mark fyrir Karim Benzema á 82. mínútu.

Van Nistelrooy hefur nú skorað 46 deildarmörk fyrir Real Madrid síðan að kom til Spánar frá Manchester United árið 2006. Hann mun missa af fimm deildarleikjum og heimaleikjum á móti Marseille og AC Milan í Meistaradeildinni.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×